blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

4.28.2005

Feitur búskapur

komin með 3 stóla og einn koll! Eld gamlir og klikkað flottir! jeijj! ég ætla að fara að kaupa tappa undir þá og svo fékk ég líka áklæði gefins með þannig aldrei að vita að maður fari að sníða og setja utanum þá!!! hhmm... Fyrst verð eg nú að pússa borðið og vínrekkan! Er komin með pússgræjur og de hele... Geri mér fullkomnlega grein fyrir þvi að eg verð ekkert sérstaklega vinsæl hjá nágrönunum við að vera að pússa þetta út á svölum... En boðið og rekkinn verða klikkað flott á eftir.. og það er það sem skiptir máli... :)
Ég er algerlega buin að skjóta mig í fótin sambandi við afskipti af húsfélagsmálum og svoleiðis leiðindum.. er komin á fullu í þetta og veit að það er no turning back! fock hvað þetta er boring en það verður einhver að gera þetta. Get nú ekki sagt að ég sé buin að kynnast neinum þarna enda á eg nóg að vinum og kunningjum og er ekkert sérstaklega mannblendin við fólk sem eg hef ekkert að segja við... Í dag er elleftir í búskap í fellsmúlanum og við erum bara að springa að kætingi og gleði yfir þessu öllu saman :) ég hef sennilega aldrei verið jafn fátæk af peningum á ævinni enda er planið að setja stórt og feitt peningatré í stóra sólríka gluggan í stofunni og sitja svo spennt eftir að eitthvað gerist.
Buin að ákveða að halda feitt... voða er allt feitt eitthvað.. innflutningsparty laug aðra helgi í mai!!jeijj!!! ´Þannig mín kæra og minn kæri takið þann dag frá og rokkið með mér í nýja slottinu :) Veit ekki alveg hvernig þetta verður eða kl hvað herlegheitin byrja .. bíst ekki við að baka neitt fyrir party-ið en það verður amk nóg að knúsi, bjór og músik í boði... fermingagræjurnar eru ekki enn dauðar þannig við eigum öll vona á gleði ! > lyfti hendinni og segji jeijj!! eg hlakka svo til<


Við Posted by Hello

4.25.2005


:) Posted by Hello

4.20.2005

Eðla

Birta var að hringja og spyrja hvort hún mætti ekki gefa vinkonu sinni eðlu í afmælisgjöf! Mér fannst það ekkert voðalega sniðugt en henni fannst það snilldin ein! Þannig barnið mitt er núna á hlaupahjólinu sínu einhversstaðar í háaleitis hverfinu á leiðinni í afmæli með eðlu í poka. Undarlegt barn.

4.18.2005


Notalegt Posted by Hello


Birta Hlíf Posted by Hello


Framkvæmdarmaðurinn Posted by Hello


Allt að koma...  Posted by Hello

JEIJJ

Dagurinn er runninn upp!!!! Búin að sofa fyrstu nóttina :) Við erum sem sagt fluttar!!!!! Getið rétt ymindað ykkur hvað það er mikil kátína í gangi! Kúbu-familíu-hófið er sem sagt on hjá mér 30 n.k. og innflutningsparty mjög fljótlega!!!! TAKK TAKK TAKK fyir alla hjálpina hún hefur verið ómetanleg KNÚS!!

4.07.2005


glugginn sem fauk ut a tun :-| Posted by Hello


smarta parketid Posted by Hello

koma svo...

Hvurslags magnaða ritstífla er þetta? Held hreynlega að það sé að verða mánuður síðan eg tjáði mig síðast. Of mikið að gera eða eg er kanski farin að vinna að meiri áhuga hmm!! Fréttir eru þær helstar að það vantar einungis herzlu-mun á innflutning... er orðin pínu óþregjufull á þessarri bið og örvæntingar blossi hefur verið slökktur nokkrum sinnum en þetta er alveg að koma þannig eg held sönzum. Það hefur eiginlega allt gengið á afi er buin að vera rosalega veikur, gekk út, billinn bilaði, lús í skólanum hja dýrinu, gluggar fuku útá tún, gjaldþrot blasir við, nýtt parket, eldhúsinnréttinginn komin, bætti á mig nokkrum páskaeggjum, vinkona er orðin ólett, 2 ny börn í kiddafélaginu, 3 börn á leiðinni í den söde familie, kiddy og valdi í heimsókn frá indlandi... hhmm þetta er svona það fyrsta sem kemur uppi hugan... það er ekki hægt að uppdate-a svona aftur í timan.. ætla reyna að halda mig bara við núið.. sjáum hvort eg geri eitthvað í þessari stíflu á morgun :)